Nýjustu fréttir

Nýjustu fréttir

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

Lesa nánar
Allt tímabilið
Sía eftir
Ár
Mánuður
17 Nov 2026

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

13 Oct 2026

„Ég er gríðarlega spenntur og er það heiður að fá að koma að þessum viðburði, þá sérstaklega á heimaslóðum“ segir söngvarinn Gunnar Björn Jónsson sem stígur á svið í Hofi á opnunarviðburði nýstofnaðar Óperu næstkomandi sunnudag. Gunnar er einn fjögurra söngvara sem hafa verið ráðnir til Óperunnar. Söngurinn hefur fylgt honum frá unga aldri og

9 Oct 2026

Sjá viðtal Raunveruleg íbúðaleit eftir skilnað varð kveikjan að Fasteignamartröðinni. Gabriele, höfundur verksins sem Leikfélag Akureyrar setur á svið, segir húsnæðisvandann eiga sér kunnuglegar hliðstæður á Íslandi. Innan um útreikninga, lán og fasteignaviðskipti leynist þó stærri spurning: Hvað skiptir raunverulega máli í lífinu? Þegar Gabriele skildi við eiginmann sinn fyrir um níu árum stóð hún

8 Oct 2026

Boðað er til aðalfundar Menningarfélags Akureyrar kl. 20:00 miðvikudaginn 28. október í Hömrum í Hofi. Dagskrá fundarins er samkvæmt skipulagsskrá félagsins. 1. Skýrsla stjórnar 2. Skýrsla Menningarfélagsins ses. 3. Ársreikningur Menningarfélagsins ses. 4. Umræða um skýrslu stjórnar og afgreiðsla ársreikninga 5. Kynning á starfsáætlun fyrir komandi starfsár 6. Tillögur stjórnar að breytingum á skipulagsskrá 7.

8 Oct 2026

Leikfélag Akureyrar frumsýnir Fasteignamartröðina, bráðfyndið og beitt samtímaverk sem fjallarmeðal annars um húsnæðismarkaðinn og fáránleika hans. Leikritið segir frá Arnrúnu, ungri konuá þrítugsaldri sem stendur skyndilega frammi fyrir því að þurfa að finna sér nýtt heimili eftirsambandsslit. Hún ákveður að kaupa sína fyrstu íbúð en kemst fljótt að því að leiðin að eiginhúsnæði er allt

7 Oct 2026

Þegar ákveðið var að Friðrik Dór og SinfoniaNord myndu halda tónleika saman kviknaði í framhaldinu hugmynd að því að gera lag saman. Afraksturinn varð „Hvað er það versta sem gæti gerst?“, sem hefur jafnt og þétt klifrað upp vinsældarlista útvarpsstöðvanna og er nú komið alla leið á toppinn á vinsældarlista Rásar 2. Lagið var tekið

🎭 Opnar prufur 2025

Taktu þátt í næstu sýningu Leikfélags Akureyrar

Ertu með ástríðu fyrir leiklist og langar að taka þátt í nýrri leiksýningu? Við leitum að metnaðarfullum þátttakendum á öllum aldri. Skráðu þig til að fá frekari upplýsingar eða taka þátt í opnum prufum.