Litháenska leikskáldið Gabrielé Labanauskaité, höfundur Fasteignamartraðarinnar, verður sérstakur gestur Leikfélags Akureyrar í tengslum við sýningu verksins í Samkomuhúsinu 11. október.
Að lokinni sýningu verður boðið upp á spurt og svarað með Gabrielé, þar sem áhorfendum gefst einstakt tækifæri til að heyra höfundinn segja frá tilurð verksins, hugmyndunum að baki því og hvernig verkið speglar samfélagið og raunveruleika þeirra sem eru að taka sín fyrstu skref inn í frumskóg fasteignakaupa.
Fasteignamartröðin er beitt og meinfyndið samtímaverk um raunveruleika ungs fólks á húsnæðismarkaði. Arnrún þarf skyndilega að finna sér nýtt heimili eftir sambandsslit og ákveður að kaupa sína fyrstu íbúð. Við tekur grátbroslegt ferðalag í gegnum frumskóg fasteignasala, fyndið og fjölbreytt mannlíf íbúðaseljenda og völundarhús bankastofnanna.
Undir öllum hamaganginum og húmornum leynist ansi beitt samfélagsádeila. Hverju þarf maður að fórna til að komast inn á markaðinn? Hvenær hættir heimili að vera heimili og verður að fjárfestingu? Og þarf leitin að draumaheimilinu að vera algjör martröð?
Í samtalinu eftir sýninguna gefst áhorfendum tækifæri á að heyra höfundinn sjálfan ræða þessar hugmyndir, hvernig þær urðu að leikverki og hvernig sagan á erindi við áhorfendur langt út fyrir heimaland hennar.
Leikstjóri sýningarinnar er Adolf Smári Unnarsson og með aðalhlutverk Arnrúnar fer Urður Bergsdóttir.
Frumsýning Fasteignamartraðarinnar verður í Samkomuhúsinu fimmtudaginn 9. október.


