Alls koma um 800 börn á sýningarnar sem verða fjórar talsins, dagana 25. til 28. janúar í Hofi.
Aðeins ein sýning er eftir af verkinu í almennri sölu miðvikudaginn 26. janúar kl. 17.00. Miðasala er í síma 450 1000 eða á www.menningarhus.is UM SÝNINGUNA: Sýningin hefur það að markmiði að áhorfendur sjái vatn í nýju ljósi; upplifi margbreytileika, mikilvægi og töfra bláa gullsins. Þrír túðar leiða áhorfendur um sögusvið vatnsins sem hefur verið á stöðugu ferðalagi um jörðina í árþúsundir; undir og á yfirborði hennar, í öllu lífverum og um himingeiminn. Trúðarnir varpa fram ýmsum spurningum um eðli og uppruna vatnsins á fræðandi en trúðslegan hátt! Ragnhildur Gísladóttir sér um hljóðmynd og Gjörningaklúbburinn (http://www.ilc.is/) sér um leikmynd og búninga.
Opið út, sjálfstætt starfandi leikhús, með Charlotte Böving í broddi fylkingar setur sýninguna upp í samvinnu við Borgarleikhúsið.
Leikstjóri: Charlotte Böving Leikarar: María Pálsdóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Víkingur Kristjánsson Höfundar: Charlotte Böving og leikhópurinn Tónlist; Ragnhildur Gísladóttir Leikmynd og búningar: Gjörningaklúbburinn Aldur: fyrir alla 6 – 99 ára
Samstarfsverkefni Opið út og Borgarleikhússins


