Til baka
4 Oct 2019

A! haldin í fimmta sinn

Gjörningahátíðin A! fer fram á Akureyri dagana 10. – 13. október næstkomandi. A! er fjögurra daga alþjóðleg gjörningahátíð sem haldin er árlega og er nú haldin í fimmta sinn. Hátíðin er samvinnuverkefni Listasafnsins á Akureyri, Menningarhússins Hofs, Leikfélags Akureyrar, LÓKAL alþjóðlegrar leiklistarhátíðar og Gilfélagsins. Samhliða A! fer vídeólistahátíðin Heim fram auk viðburða utan dagskrár (off venue). Hátt í 2000 gestir hafa sótt hátíðina hverju sinni og notið líflegra gjörninga.

Fjölbreyttir gjörningar og leikhústengd verk af öllum toga eru á dagskránni. Þátttakendur A! Gjörningahátíðar eru ungir og upprennandi listamenn, ásamt reyndum og vel þekktum gjörningalistamönnum og leikhúsfólki. Þátttakendur eru: Ásdís Sif Gunnarsdóttir, Dustin Harvey, Einkasafnið, Florence Lam, Haraldur Jónsson, Íris Stefanía / Hljómsveitin Eva, Listahópurinn Kaktus, The Northern Assembly, Photo Studio »Schmidt & Li« , Rodney Dickson, Snorri Ásmundsson, Sunna Svavarsdóttir, Tales Frey, Tine Louise Kortermand / María Lilja Þrastardóttir.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link