Boðað er til aðalfundar Menningarfélags Akureyrar kl. 20:00 miðvikudaginn 28. október í Hömrum í Hofi.
Dagskrá fundarins er samkvæmt skipulagsskrá félagsins.
1. Skýrsla stjórnar
2. Skýrsla Menningarfélagsins ses.
3. Ársreikningur Menningarfélagsins ses.
4. Umræða um skýrslu stjórnar og afgreiðsla ársreikninga
5. Kynning á starfsáætlun fyrir komandi starfsár
6. Tillögur stjórnar að breytingum á skipulagsskrá
7. Ákvörðun um þóknun til stjórnarmanna
8. Tilkynning um skipun fulltrúa í stjórn
9. Kosning löggilds endurskoðanda félagsins
10. Önnur mál
Skipaðir aðalfundarfulltrúar hafa einir tillögu- og atkvæðarétt á fundinum.
Fundurinn er opinn öllum á meðan húsrúm leyfir. Vonumst til þess að sjá ykkur sem flest.


