Til baka
20 Jan 2023

Aðeins vika í frumsýningu

Nú er aðeins vika í frumsýningu á söngleiknum Chicago! 

Leikfélag Akureyrar, í samvinnu við Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, frumsýnir  Chicago í Samkomuhúsinu föstudagskvöldið 27. janúar. 

Engin önnur en stórstjarnan Jóhanna Guðrún leikur Velmu en leik- og söngkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikur Roxý. Margrét Eir fer með hlutverk fangelsisstýrunnar, Björgvin Franz Gíslason leikur lögfræðinginn Billy Flynn, Arnþór Þórsteinsson er Adam og Bjartmar Þórðarson leikur fjölmiðlakonuna Mörtu smörtu. Með önnur hlutverk fara Jónína Björt Gunnarsdóttir, Ahd Tamimi, Elma Rún Kristinsdóttir, Kata Vignisdóttir, Anita Þorsteinsdóttir og Molly Carol Birna Mitchell.

„Langþráður draumur minn að rætast, að setja upp Chicago, einn flottasta söngleik allra tíma,“ segir Marta Nordal leikstjóri sýningarinnar og leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar en Chicago, eftir John Kander, Fred Ebb og Bob Fosse, er einn þekktasti og vinsælasti söngleikur allra tíma. Söngleikurinn var frumsýndur á Broadway árið 1975 og sló strax í gegn en uppsetningin frá árinu 1996 gengur enn fyrir fullu húsi og er ein sú langlífasta á Broadway frá upphafi.

Þetta er í fyrsta sinn sem þessi vinsæli og margverðlaunaði söngleikur er sýndur á Akureyri í atvinnuleikhúsi. Chicago var fyrst sýnd í Þjóðleikhúsinu 1985 í þýðingu Flosa Ólafssonar og svo aftur í Borgarleikhúsinu árið 2005.

Uppsetningin í Samkomuhúsinu er samstarfsverkefni Leikfélags Akureyrar og Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Eins og áður segir er leikstýrir Marta Nordal. Tónlistarstjóri er Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson, danshöfundur Lee Proud, leikmyndahönnuður Eva Signý Berger, búningahönnuður Björg Marta Gunnarsdóttir, Harpa Birgisdóttir sér um leikgervi, Ólafur Ágúst Stefánsson er ljósahönnuður og hljóðhönnuður er Sigurvald Ívar Helgason. Þýðingin er eftir Gísla Rúnar Jónsson.

Miðasala er í fullum gangi á mak.is. Athugið; takmarkaður sýningatími.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link