Til baka
18 Dec 2025

Aðlaðandi helgi framundan í Hofi og Samkomuhúsinu

Þessa aðra helgi í aðventunni munu ljúfir jólatónar, ódauðleg popptónlist, dans, grín, jólaglens og hin hugprúða Jóla Lóla með stóru draumana koma við sögu í Hofi og í Samkomuhúsinu.

Í Samkomuhúsinu munu Umskiptingar í samvinnu við Leikfélag Akureyrar frumsýna glænýja íslenska grínsýningu JÓLAGLÖGG föstudagskvöldið 5. desember kl 20 . Þetta er sketsasýning um skrítnar jólahefðir, yfirþyrmandi jólalög, gjafastress og fleira til. Hér er boðið til hláturveislu um spaugilegar hliðar jólanna í leikstjórn Jennýjar Láru Arnórsdóttur. Sýningar eru alla helgina.

Fjölskyldusýningin Jóla Lóla snýr aftur í Samkomuhúsið laugardaginn 6. desember kl 13 og 15. Jóla Lóla er uppátækjasöm jólasveinastelpa sem á sér þann draum heitastan að fara til byggða og gefa börnum í skóinn. Vinur hennar, sem heitir Vettlingur, er ekki jafn æstur í ævintýraferðir því hann langar helst að vera heima í jólabústaðnum að pakka inn gjöfum. Saman leggja þau þó af stað með Skyrgámi og lenda í svaðilförum. Þessi sýning er tilvalin fyrir alla fjölskylduna enda hjartastyrkjandi og falleg fyrir börn á öllum aldri. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson. Sýningar eru til 28. desember.

Bubbi sjálfur slær svo tóninn inní þessa aðra helgi í aðventunni af sinni alkunnu snilld á föstudagskvöldið í Hofi, þar sem hann býður uppá sín allra bestu lög. Þau Jónína Björt, Svavar Knútur og Una Torfa ásamt hljómsveit og kórum bjóða gestum sínum uppá á huggulegheit á tónleikum sínum Jólaljós og lopasokkar á laugardagskvöldið. Þetta verða huggulegheit með hugljúfum jólalögum og alkunnum jólaperlum.

Sunnudagurinn hefst með hátíðlegri danssýningu STEPS – Þegar Trölli stal jólunum – þar sem fram koma nemendur á öllum aldri. Dansspor, gleðitár á hvarmi og dúndrandi lófatak mun spila stórt hlutverk á þessum árlega viðburði STEPS.

Punktinn yfir i-ið í þessari fjölbreyttu og girnilegu helgi setja svo GDRN og Magnús Jóhann með flutningi sínum á nokkrum jólalegum lögum sunnudagskvöldið 7.desember kl 20 í Hömrum. Þau eru flestum landsmönnum kunnug enda komið víða að í tónlistarsköpun undanfarin ár.

Verk Guðrúnar Sigurðardóttur myndlistarkonu prýða nú veggi Hamragils og bjóða gesti hússins velkomna á aðventunni. Á sýningunni eru textílverk, olíumálverk og teikningar.

Vert að benda á að enn eru nokkrir miðar lausir á viðburði þessarar fyrstu helgi í aðventu – miðasalan er opin alla virka daga kl 13-16 og allan sólahringinn á mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link