Til baka
20 Aug 2026

Áheyrnarprufur fyrir Skilaboðaskjóðuna

Við leitum að hæfileikaríkum krökkum á aldrinum 9-18 ára til að fara með ýmis hlutverk í stórsýningunni Skilaboðaskjóðan sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar 2027.

Öll börn og ungmenni eru hvött til þess að láta ljós sitt skína og sækja um, óháð kyni, uppruna eða reynslu.

Áheyrnarprufur fara fram í Samkomuhúsinu á Akureyri þann 5. september 2026.

Skráningu lýkur 3. september.

Undirbúningur

Allir krakkar sem taka þátt þurfa að læra lagið „Hugrenningar Rauðhettu“, stutta senu með Putta litla og einfalda dansrútínu. 

Einnig er hægt að undirbúa sig með því að hlusta á Skilaboðaskjóðuna á Spotify.

Fyrirkomulag

Prufur fara fram í Samkomuhúsinu laugardaginn 5. september og mögulegt er að einhver börn verði boðuð áfram í áframhaldandi prufur þann 6. september.

Umsækjendur fá sendar nánari upplýsingar, um tímasetningar og fleira, þegar nær dregur áheyrnarprufum.

Fyrirspurnir sendist á thorunn@mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link