Til baka
16 Apr 2020

Áhorfendur velja fjölskyldusýningu næsta leikárs

Leikfélag Akureyrar fer nýstárlega leið að því að velja fjölskylduverk næsta leikárs því áhorfendur fá að velja verkið. Seinna í dag hefst kosning á vefsíðu Menningarfélags Akureyrar, www.mak.is, þar sem áhugasamir geta valið á milli þriggja verka; Fíasól eftir Kristínu Helgu Gunnarsdóttur, Móglí í leikgerð Illuga Jökulssonar og Benedikt Búálfur eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson.

Marta Nordal, leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar, segir kosninguna spennandi tækifæri fyrir áhorfendur til að hafa meiri áhrif í leikhúsinu. „Mér finnst spennandi að sjá hvort beint lýðræði geti virkað í leikhúsi og hvort við getum þannig fært valdið meira til áhorfenda. Þetta er ein leið; að leyfa áhorfendum að velja á milli nokkurra leikverka í bindandi kosningu,“ segir Marta.

Það verk sem fær flest atkvæði verður sett upp í Samkomuhúsinu og frumsýnt í febrúar 2021 en leikstjóri verður Vala Fannell sem er spennt að takast á við verkefnið. „Mér finnst æðislegt að gefa fólki kost á að kjósa um verk því það skapar fallegan samhug og við getum verið viss um að við setjum upp stórkostlega sýningu sem lyftir huga og hjörtum okkar allra eftir erfiðleikana sem að samfélagið okkar er að ganga í gegnum á líðandi stundu,“ segir Vala.

Eins og áður segir hefst kosningin í dag. Fylgstu með!

 

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link