Til baka
21 Aug 2024

Akureyrarvaka í Hofi – Full dagskrá HÉR!

Það verður margt um að vera hjá okkur í Hofi á Akureyrarvöku frá föstudagskvöldi 30. ágúst til sunnudags 1. september. Kynnið ykkur dagskrána hér fyrir neðan! 

Kl 22-23:30 || Rómantískt síðkvöld með Tríói Akureyrar || Mói Bistro.

Tríó Akureyrar flytur úrval undursamlegra dægurlaga við kertalýsta kaffihúsastemningu á Móa Bistro í Hofi. Gestir og gangandi geta litið inn, bragðað á veitingum Móa og notið sjarmerandi tónlistar frá gulláratugum dægurlagsins. Tríóið er skipað tónlistarmönnunum Valmari Väljaots, Jóni Þorsteini Reynissyni og Erlu Dóru Vogler.Frekari upplýsingar hér 

Það verður mikið um að vera í Hofi á laugardaginn og eitthvað fyrir öll! Dagskráin í húisinu er frá kl 14-17 . 

Kl – 14-17 || Forvitnilegir búningar LA og spennandi leikhúsfróðleikur fyrir börn || Naust

Komdu, prófaðu og vertu með í happdrætti. Búningar til sýnis frá ýmsum söngleikjum og leiksýningum sem Leikfélag Akureyrar hefur sett upp í gegnum árin. Börnin geta tekið þátt í laufléttri spurningakeppni til að eiga möguleika á að vinna gjafabréf á Litlu Hryllingsbúðina!

Frekari upplýsingar hér

Kl 14-16 || Sápukúlur, skátapopp og slökkviliðsbíll || Fyrir utan Hof

Skátarnir bjóða áhugasöm að poppa og grilla sykurpúða yfir varðeldi, gera risa sápukúlur og spreyta sig á ýmsum verkefnum.

Slökkvilið Akureyrar býður börnum á öllum aldri að skoða bílinn.

Frekari upplýsingar hér

Kl 14-14.50 || Leikhúslög barnanna || Hamraborg

Frábær skemmtun fyrir börn. Í fyrra komust færri að en vildu og því er búið að færa tónleikana í Hamraborg.

Frekari upplýsingar hér

Kl 14-15 || Flammeus X Stefán Elí || Hamragil

Akureyrsku tónlistarmennirnir Stefán Elí Hauksson og Tumi Hrannar Pálmason (Flammeus) leiða saman hesta sína í sínu fyrsta samstarfsverkefni. Þeir bjóða upp á einstaka tónlistarupplifun þar sem bæði verða leikin gömul og kunn lög sem þeir hafa gefið út í sitthvoru lagi, og frumflutt glænýtt, framandi og ferskt efni sem kumpánarnir hafa nýverið skapað saman.

Frekari upplýsingar hér

Kl 14-14:4o || Acro Jóga || Hamragil

Hjónin Jacob og Tinna bjóða foreldrum, börnum, systkinum, vinum, pörum… að koma og leika í Acro Jóga í Hamragili í Hofi. Þau munu leiða hópinn í gegnum skemmtilega leiki og æfingar sem munu kitla hláturtaugarnar.

Frekari upplýsingar hér

Kl 15 || Þátttökudans með Sunnevu Kjartans sumarlistamanni ||Hamragil

Sumarlistamaður Akureyrar býður upp á opinn danstíma sem öll geta tekið þátt í, dansreynsla er alls ekki nauðsynleg. Stuttur og laggóður tími þar sem áhersla verður lögð á að hafa bara gaman og hrista sig smá!

Frekari upplýsingar hér

Kl 15:15 – 15:25 || Nemendur Taekwondo-deildar Þórs sýna listir sínar || Hamragil

Taekwondo er kóresk bardagalist sem er æfð um allan heim og ein af keppnisgreinum Ólympíuleikana. Nemendur frá Taekwondo-deild Þórs sýna brot

af því sem þau eru að læra.

Kl 15.30 – 16.00 || Una Torfa og Hafþór || Hamrar, opið fram í Hamragil.

Una Torfa, söngkona, hljóðfæraleikari og lagahöfundur gaf nýverið út sína fyrstu breiðskífu, Sundurlaus samtöl. Hún mun taka nokkur lög í Hömrum í Hofi kl 15:30.

Frekari upplýsingar hér

Kl 16 – 16:30 || Ballett á svölunum || Svalir við Setberg.

Sunneva Kjartans, sumarlistamaður Akureyrar mun æfa ballet uppi á svölunum í Hofi sem gestir og gangandi get fylgst með. 

Frekari upplýsingar hér

Kl 16 – 16:30 || OPIN ÆFING LA á Litlu Hryllingsbúðinni || Hamraborg.

LA verður með opna æfingu á Litlu Hryllingsbúðinni í Hamraborg þar sem öll eru velkomin að koma og vera fluga á vegg. 

Frekari upplýsingar hér

Kl 17 – 17:40 || Sönghópurinn ÓMAR || Hamar, opið fram í Hamragil

Ómar er blandaður söngkvartett sem leggur áherslu á skemmtilega og fallega tónlist sem gleður hjartað. Á efnisskrá eru lög úr ýmsum áttum, bæði þekkt íslensk þjóðlög og verk eftir samtímahöfunda. Kvartettinn skipa Helga Kolbeinsdóttir sópran, Harpa Björk Birgisdóttir alt, Jón Þorsteinn Reynisson tenór og Jón Pálmi Óskarsson bassi.

Frekari upplýsingar hér

Kl 20 – Ljóðajazz || Augnablikið og eilífðin, tónlist og ljóð í Hömrum || HAMRAR

Einar Már Guðmundsson rithöfundur og Dorthe Höjland Group. Hér mætast tónlist og ljóðlist tveggja listamanna sem hafa hrifist af tjáningu hvors annars. 

Frekari upplýsingar hér

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link