Til baka
17 Apr 2024

Álfar, ástin og fólk í formi

Það er skemmtileg helgi framundan í Menningarhúsinu Hofi!

Sýning Barnamenningarhátíðar, Hulduverur – Myndlistarsýning nemenda Brekkuskóla, opnar í Hamragili á föstudagskvöldið. Sýningin er í tengslum við ráðstefnuna Huldufólk og álfar í heimabyggð sem haldin verður í Hofi á laugardaginn. Markmið ráðstefnunnar er að heiðra þennan óáþreifanlega menningararf.

Myndlistarsýningin varpar ljósi á viðhorf barna til álfa og huldufólks árið 2024. Öll velkomin á opnun myndlistarsýningarinnar en uppselt er á ráðstefnuna. 

Á föstudagskvöldinu er komið að stefnumóti við ástina þegar söngkonan Rósa María flytur rómantísk dægurlög á tónleikunum Hjartans tónar. Fluttar verða rómantískar dægurlagaperlur úr ýmsum áttum, létt og lifandi, silkimjúk og seiðandi tónlist, svo ást, hlýja og vellíðan fylli rýmið og streymi um æðarnar og fylgi tónleikagestum út í vorið. Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð. 

Íslandsmótið í fitness fer fram á laugardaginn í Hofi. Keppt verður í öllum helstu fitnessflokkum karla og kvenna og eru um 50 keppendur skráðir til keppni.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link