Það verður heldur betur nóg um að vera í Hofi þegar líður að jólum. Jólagrín, stórir jólatónleikar, fjölskylduskemmtun og uppistand fylla dagskrána frá lokum nóvember og fram að jólum. Baggalútur, Bubbi Morthens, Vitringarnir þrír, Skoppa og Skrítla og Ari Eldjárn eru meðal þeirra sem stíga á svið, auk þess sem norðlenska jólagrínið Jólaglögg snýr aftur.
Jólastemningin hefst strax síðustu helgina í nóvember þegar samkomuhúsið fyllist af Jólaglöggi. Jólaglögg sló í gegn á síðasta ári og snýr nú aftur með sex sýningar 27. og 28. nóvember og 4. desember. Þar er á ferðinni frumsamin norðlensk sketsasýning frá Umskiptingum þar sem jólin og allt ruglið sem þeim fylgir er tekið föstum tökum. Sýningin er ætluð fullorðnu fólki með fyrirmyndar kímnigáfu.
Sömu helgi mætir Baggalútur í Hamraborg í Hofi með sína sívinsælu jólatónleika. Í ár eru tuttugu ár liðin frá fyrstu jólatónleikum sveitarinnar og því tilefni til að halda upp á afmælið. Tónleikarnir verða föstudaginn 27. og laugardaginn 28. nóvember og hefjast kl. 21.
Fyrsta desemberhelgin verður síðan þéttskipuð. Jólapartý Skoppu og Skrítlu tekur yfir Hamraborg 4. og 5. desember með alls fimm sýningum. Þar fá þær meðal annars til liðs við sig Pál Óskar Hjálmtýsson og Sölku Sól ásamt stórum hópi syngjandi og dansandi barna. Sýningin er tæplega klukkustund og sérstaklega hugsuð fyrir alla fjölskylduna.
Um kvöldið 5. desember verður svo allt annað yfirbragð á Hamraborg þegar Bubbi Morthens mætir með Þorláksmessutónleikana sína. Tónleikaröðin fagnar nú stórafmæli en fyrstu tónleikarnir voru haldnir á Hótel Borg fyrir um 40 árum síðan. Bubbi verður einn með gítarinn, flytur lög úr löngum ferli sínum og spjallar við salinn á sinn einstaka hátt.
Um miðjan desember mæta svo Vitringarnir þrír norður. Eyþór Ingi Gunnlaugsson, Friðrik Ómar Hjörleifsson og Jógvan Hansen hafa undanfarin ár skapað sér sérstakan sess í jólahaldi landsmanna með blöndu af tónlist, húmor og óvæntum uppákomum. Þeir verða í Hamraborg dagana 11. og 12. desember og þegar er farið að seljast upp á einstakar sýningar.
Hátíðardagskráin fær síðan ögn annan blæ þegar Ari Eldjárn kemur í Hof 19. desember með Áramótaskop 2026. Ari hefur í áratug kvatt árið með sérstakri uppistandssýningu þar sem árið sem er að líða fær sinn skerf af athygli ásamt öðru nýju efni. Sýningin verður í Hamraborg kl. 21.
Það má því með sanni segja að úrvalið fyrir norðan verði fjölbreytt í aðdraganda hátíðanna, allt frá barnaskemmtun og hefðbundnum jólatónleikum yfir í grín, uppistand og tónlistarveislur af ýmsum toga..
Miðar á viðburðina eru í sölu á menningarfelag.is.


