Til baka
1 Sep 2023

Allskonar skemmtilegt í september!

September heilsar með fjölbreyttum viðburðum í Menningarhúsinu Hofi og Samkomuhúsinu!

Viðburðurinn gímaldin flytur Hetfield píanó proekt ríður á vaðið í Svarta kassanum í Hofi þann 8. september. Um er að ræða tilvistar- og aðferðafræðilega raun um eðli tónlistar. Viðburðurinn er styrktur af VERÐANDI listsjóð sem er samstarfsverkefni Akureyrarbæjar, Menningarfélagsins Hofs og Menningafélags Akureyrar.

Daginn eftir er komið að afmælistónleikunum Við eigum samleið. Þau Sigga Beinteins, Guðrún Gunnars og Jógvan Hansen flytja öll vinsælustu lögin sín frá upphafi og nokkur ný. 

Nostalgían tekur völdin 15. september þegar söngkonan Guðrún Árný mætir í Hof með vinsælustu lögin frá 80´s og 90´s. Heilmikil tónlistarveisla sem enginn má missa af. Þá er komið að rokkinu því Skálmöld heldur útgáfutónleikana Ýdali í Hofi 16. september.  Selt verður í sæti og tónleikarnir henta öllum aldri. Yngri áhorfendur og viðkvæmari skyldu muna eftir heyrnarhlífurm.

Hljómsveitin Hundur í óskilum mætir aftur í Samkomuhúsið og nú með sýninguna Njála á hundavaði. Leikarar eru að vanda Eiríkur Stephensen og Hjörleifur Hjartarson og leikstjóri Ágústa Skúladóttir. Sýningar hefjast í Samkomuhúsinu 22. september. 

Hljómsveitin  Hvanndalsbræður er þekkt fyrir að fara ótroðnar slóðir í tónleikahaldi með sambland af ýmiskonar uppákomum, tónlist og sprelli og á því verður eflaust engin breyting þegar þeir troða upp í Hofi 30. september. Með hljómsveitinni verða góðir gestir en það eru þeir Gísli Einarsson og Kristján Ingimarsson. 

Miðasala á alla viðburðina er í fullum gangi á mak.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link