Til baka
12 Jan 2026

Allt litróf leikhússins framundan hjá Leikfélagi Akureyrar

Þó svo að frábæru ári sé nú lokið hjá Leikfélagi Akureyrar er síður en svo verið að slaka á með fætur upp í loft og eggjapúns um hönd.  Nú stendur yfir undirbúningur á risastóru verkefni þar sem 5 leikarar munu leika 32 hlutverk sem ferðast munu á 14 áfangastaði þar sem 3 kossar og óteljandi morð verða framin ásamt nokkrum upprisum á sviði Samkomuhússins á Akureyri.  Allt þetta verður flutt, leikið og túlkað með stuðningi frá 10 hljóðfæraleikurum Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands og 2 bakraddasöngvurum. Verkið inniheldur nefnilega 12 glæný lög eftir Þorvald Bjarna Þorvaldsson en hann hefur samið  lög fyrir um 10 söngleiki sem allir hafa slegið í gegn. Verkið sem um ræðir er Birtíngur eftir Voltaire, sem miðað við ofantalið, mun fá töluvert mikla yfirhalningu í leikstjórn Bergs Þórs Ingólfssonar. Verkið verður frumsýnt þann 26. febrúar.

Miðasala á Birtíng

Á sama tíma er verið að undirbúa Samkomuhúsið fyrir komu sýningarinnar um Kaftein Frábæran sem er hjartnæmur og fyndinn einleikur eftir Alistair McDowall. Ævar Þór Benediktsson var tilnefndur til Grímunnar fyrir leik sinn í verkinu og hafa bæði Morgunblaðið og Vísir gefið uppsetningunni 4 stjörnur. Kafteinn Frábær er aðeins sýndur eina helgi í janúar, dagana 17. og 18. janúar og því um að gera að hafa hraðar hendur og næla sér í miða sem fyrst.

Miðasala á Kafteinn Frábær

Með vorinu verður svo nýtt ljóðrænt brúðuleikrit sýnt sem ber nafnið Rót, þar er á ferðinni hjartnæm og hugmyndarík upplifun fyrir fjölskylduna sem gerist ári’ð 1995. Verkið fjallar um ungan dreng í íslenskum bæ sem er að fara að hitta ömmu sína. Hún kemur frá Paragvæ eins og stormsveipur litadýrðar og söngs með ferðatösku fulla af sögum, minningum og smá göldrum líka.

Miðasla á RÓT

Auk allra þessara sýninga munu leikhúsrottur taka á móti skólabörnum á vordögum og kynna þau fyrir  heimi, töfrum og leyndardómum leikhússins.

Við hvetjum öll til að fylgjast með spennandi starfsemi leikfélagsins á heimasíðu Menningarfélags Akureyrar www.menningarfelag.is

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link