Alþjóðlega stuttmyndahátíðin Northern Lights – Fantastic Film Festival fer fram í Hofi dagana 26.-29. október. Sýndar verða 48 alþjóðlegar fantasíu, hrollvekju og sci-fi stuttmyndir.
Hátíðin er haldin í fyrsta skipti á Akureyri. Aðstandendur hátíðarinnar eru þau Ársæll Sigurlaugar Níelsson, leikari og framleiðandi, Brynja Baldursdóttir, myndlistakona og hönnuður og Marzibil Sæmundardóttir, kvikmyndagerðarkona.
Miðasala í fullum gangi á mak.is


