Til baka
29 Apr 2011

Alþjóðlegi dansdagurinn á Akureyri

Hugmyndin um að halda alþjóðlegan dansdag kom upp á fundi dansara í Finnlandi árið 1981. Rússneski danshöfundurinn Peter Gusev flutti tillögu um að velja fæðingardag franska danshöfundarins Jean Noverre (1727-1810) 29. apríl sem dansdag en Noverre hafði mikil áhrif á þróun danslistar í Evrópu.

Á Íslandi hefur alþjóðlegi dansdagurinn verið haldinn síðan árið 1989. Dagskrá dansdagsins á Akureyri hefst með því  að dansáhugafólk marserar frá kirkjutröppum Akureyrarkirkju kl. 17:00 í gegnum miðbæinn og að Hofi. Í opna rýminu, Hamragili sýna hópar dansatriði frá dansskólum og danshópum á Akureyri og nágrenni.

Dansarar og gestir dansdagsins sem það vilja dansa saman tjútt en einnig enskan vals í tilefni dansins. Að lokum dansa gestir og dansarar saman dans dansdagsins sem Nanna úr Dans Center í Reykjavík samdi. Dansinn má sjá á slóðinni: http://www.youtube.com/watch?v=YL_eMx-1vkg

Aðstandendur Dansdagsins á Akureyri eru:

Akureyrarstofa Dansdeild Akurs Dansskóli Elínar Halldórsdóttur Dansskóli Önnu Breiðfjörð Menningarhúsið Hof Point Dansstúdíó Vefarinn

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link