Til baka
22 Jun 2020

Árni Beinteinn er Benedikt búálfur

Árni Beinteinn Árnason leikur Benedikt búálf í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á ævintýralega fjölskyldusöngleiknum um Benedikt búálf eftir Ólaf Gunnar Guðlaugsson og Þorvald Bjarna Þorvaldsson. Söngleikurinn hlaut sigur í spennandi netkosningu þar sem áhorfendur fengu að velja næstu fjölskyldusýningu Leikfélags Akureyrar og verður frumsýndur í Samkomuhúsinu í febrúar 2021.

Leikkonan Þórdís Björk Þorfinnsdóttir leikur einnig stórt hlutverk í söngleiknum sem Dídí mannabarn. Þórdís Björk er einnig tónlistarkona en hún spilar með sveit sinni Reykjavíkurdætur. Hún hefur starfað mikið við talsetningar og talar og syngur til að mynda fyrir Önnu prinsessu í Frozen. Þórdís fór með annað aðalhlutverkið í verðlaunasöngleiknum Vorið vaknar í Samkomuhúsinu á síðasta leikári en Árni Beinteinn lék einnig í verkinu. Bæði eru því öllum hnútum kunnug á Akureyri og spennt að koma aftur norður.

Söngleikurinn Benedikt búálfur var fyrst settur upp árið 2002 í Loftkastalanum. Þá var það Björgvin Franz Gíslason sem fór svo eftirminnilega með hlutverk búálfsins. „Það er ótrúlega ánægjulegt að fá þetta skemmtilega hlutverk og fá að takast við þetta verkefni með öllu þessu hæfileikafólki. Söngleikurinn um Benedikt búálf hefur verið í uppáhaldi hjá mér síðan ég sá hann fyrst í Loftkastalanum sem barn og það er eiginlega óraunverulegt að feta nú í fótspor Björgvins Franz tæpum 20 árum síðar,“ segir Árni Beinteinn.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link