Til baka
24 May 2017

Auglýst eftir umsóknum í Tónlistarsjóð

Vilt þú halda tónleika í Hofi eða Samkomuhúsinu?

Akureyrarbær auglýsir nú eftir umsóknum í nýstofnaðan Tónlistarsjóð Hofs og Samkomuhússins fyrir starfsárið 2017-2018. Helstu markmið sjóðsins eru að auðvelda ungu tónlistarfólki og þeim sem standa utan stofnana að nýta sér aðstöðuna í húsunum, stuðla að fjölbreytileika í tónlistarviðburðum og nýta þá möguleika sem Hof og Samkomuhúsið hafa upp á að bjóða fyrir tónlistarviðburði. 

Umsóknir í sjóðin skulu sendast á netfangið tonlistarsjodur@akureyri.is og fylgja skal greinargóð lýsing á verkefni og markmiðum þess, kostnaðaráætlun og óskir flytjenda um dagsetningu viðburðar.

 

Síðasti dagur til að skila inn umsóknum er mánudagurinn 29. maí. 

 

Nánari upplýsingar um markmið og úthlutunarreglur sjóðsins má nálgast HÉR.

Frekari upplýsingar má nálgast hjá Huldu Sif Hermannsdóttur verkefnisstjóra menningarmála og viðburða á Akureyrarstofu. Netfang hennar er huldasif@akureyri.is.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link