Til baka
13 Oct 2025

Aukasýningar komnar í sölu og fyrsta umsögn um Elskan, er ég heima? komin í hús.

Eftir mjög vel heppnaða frumsýningarhelgi á leikritinu Elskan, er ég heima? hefur nú verið bætt við 5 aukasýningum til að sinna eftirspurn. Nánast hver einasta sýning sem auglýst hefur verið til þessa er að verða uppseld og því um að gera að tryggja sér sæti til að berja þessa skemmtilegu sýningu augum. 

“Við mæðgur settumst inn í salinn meðan aðrir gestir voru enn frammi í anddyrinu að sýna sig og sjá aðra og nutum þess að fá góða stund einar með stórkostlegu leiksviðinu. Þar gat að líta fullkomna dúkkuíbúð frá sjötta áratugnum: eldhús á einum palli, stofa á öðrum, húsbóndaherbergi (einn hægindastóll og útvarpstæki með plötuspilara) á þeim þriðja og loforð um herbergi inn af þeim palli eða uppi á efri hæð. Hvert smáatriði var fullkomið, húsgögn, málverk og útsaumur á veggjum og á púðum í sófa – þetta var alveg truflað! ” Svona hefst umsögn Silju Aðalsteinsdóttir hjá Mannlífi um leikritið og um þau hjón sem Óli Ásgeirs og Hólmfríður Hafliðadóttir túlka í leikritinu segir hún: “Þau eru sammála um að þau séu óstjórnlega hamingjusöm einmitt vegna þess að hún er heimavinnandi og getur notað alla orku sína í að láta heimilið líta vel út og láta honum líða vel. Þessi glansmynd endist nokkurn veginn fram að hléi en svo kemur í ljós að hún er glansmynd – eins og var líka í kvæði Davíðs Stefánssonar um litlu Gunnu og litla Jón. Bæði er ástandið á fjárreiðum heimilisins ekki eins gott og Gunna heldur fram og ekki eru hvatir hennar heldur eins tærar og hún vill vera láta. Það glittir í flókna og áhugaverða persónu undir gelda yfirborðinu úr blaða- og tímaritsauglýsingum frá 1955, persónu með sára fortíð sem ekki má tala um.” Silja er ánægð með verkið, boðskapinn, uppsetninguna sem og leikaravalið, og hún heldur áfram:  “Þá flóknu og spennandi persónu túlkaði Hólmfríður listilega vel. Hún hefur svipbrigðaríkt andlit sem getur tjáð mótsagnakenndar tilfinningar þannig að furðu auðvelt er að lesa þær og greina í sundur. Hún er líka lipurtá, full yndisþokka, sem passaði hlutverkinu fullkomlega, en gat svo á augabragði orðið hörð og eitruð. Ólafur var prýðilegur mótpartur, Nonni hans var dálítill þurs móti hennar álfamey, jarðbundinn, skynsamur, dálítið lengi að fatta en fylginn sér þegar hann hefur fattað. Aukahlutverkin eru líka vel skipuð. Gamla rauðsokkan Tóta var í hæfum höndum Eddu Björgvinsdóttur sem var vissulega meinfyndin en stafaði líka frá sér innri krafti sem smitaðist um allan salinn. Vigdís Halla var meðvirka vinkonan lifandi komin en tækifærissinninn Markús var verulega hættulegur í höndum Hjalta Rúnars. Við kynnumst líka yfirmanni Nonna á fasteignasölunni, Blævi (Urður Bergsdóttir) sem er dásamleg andstæða Gunnu í einu og öllu eins og Urður sýndi vel.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link