Til baka
16 Apr 2024

Barnamenningarhátíð í Hofi

Árlega er aprílmánuður helgaður Barnamenningarhátíð á Akureyri.Markmið hátíðarinnar er að hvetja börn og ungmenni til virkrar þátttöku í menningarstarfi og veita þeim tækifæri til að njóta lista og menningar. Leiðarljós hátíðarinnar eru fagmennska, fjölbreytileiki, jafnræði og gott aðgengi fyrir öll börn og ungmenni.Vettvangur hátíðarinnar er Akureyrarbær og leitast er við að nýta spennandi og áhugverð rými þar sem börn geta skapað, notið, sýnt og túlkað.

Meginreglan er að aðgengi að viðburðum sé án endurgjalds. Barnamenningarhátíð á Akureyri tekur mið af markmiðum Menningarstefnu Akureyrarbæjar og aðgerðaráætlun barnvæns sveitarfélags.

Hjá Menningarfélaginu verður mikið um að vera á Barnamenningarhátíðinni.

 

Tónleikar Upptaktsins voru 7. apríl kl 17:00en þá fluttu atvinnuhljóðfæraleikarar verk eftir 10 ungskáld á aldrinum 10-16 ára í Hamraborg.

Hulduverur – Myndlistarsýning nemenda Brekkuskóla opnar föstudaginn 19. apríl kl 10:00 í Hamragili í Hofi.

Hæfileikakeppni Akureyrar 2024 – Stórskemmtilegur viðburður fyrir 5.-10. bekkinga á Akureyri þann 24. apríl kl 16:00 í Hamraborg.

Sumartónar með Emmsjé Gauta og Skandal – Sannkölluð tónlistarveisla á sviði Hamraborgar á sumardaginn fyrsta, 25. apríl kl 17:00.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link