Til baka
10 May 2024

Birta er Auður!

Birta Sólveig Söring Þórisdóttir hefur verið valin í hlutverk Auðar í Litlu Hryllingsbúðinni en Leikfélag Akureyrar setur upp söngleikinn í haust.

Um það bil 60 frábærar leikkonur mættu í áheyrnarprufurnar sem fram fóru bæði í Reykjavík og á Akureyri. Birta Sólveig útskrifast úr Listaháskóla Íslands í vor. „Ég er uppalin í sveit rétt hjá Hellu þar sem minn listferill byrjaði úti á túni. Ég er endalaust þakklát fyrir að fá tækifæri til að vinna hjá Leikfélagi Akureyrar og hlakka svo ótrúlega mikið að vinna með öllu þessu æðislega fólki. Þetta verður algjör snilld.“

Litla Hryllingsbúðin verður frumsýnd í Samkomuhúsinu í október. Með hlutverk Baldurs fer Kristinn Óli Haraldsson, Króli, en tannlæknirinn verður engin önnur en Ólafía Hrönn Jónsdóttir. Leikstjóri er Bergur Þór Ingólfsson.

Forsölutilboð á söngleikinn er í fullum gangi á mak.is.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link