Til baka
18 Dec 2025

Birtíngur verður rokkóperetta með lögum eftir Þorvald Bjarna

Verið er að semja 12 ný lög fyrir rokkóperettunaBirtíngur sem er uppsetning byggð á klassísku verki Voltaires, nú í nýrri og kraftmikilli leikgerð Bergs Þórs Ingólfssonar. Þar er heldur betur verið að blása fersku lífi í söguna með nýjum lögum eftir meistara söngleikjanna, Þorvald Bjarna Þorvaldsson, sem samdi tónlistina fyrir t.a.m. Ávaxtakörfuna, Benedikt Búálf, Hafið Bláa, Gosa o.fl. 

Leikstjórn er í höndum Bergs Þórs Ingólfssonarog verður hópur af úrvalsleikurum í aðalhlutverkum, þar á meðalNíels (Nilli) Thibaud Girerd, Hjalti Rúnar Jónsson, Hólmfríður Hafliðadóttir, Sólveig Guðmundsdóttir og Urður Bergsdóttir.

Fyrsta lag sýningarinnar, Allt er alltaf allstaðar í allra besta lagi, er nú tilbúið og í kjölfarið var tekin ákvörðun um að gera tónlistarmyndband við lagið og var það frumsýnt á Vísi. Leikstjórn var í höndum Kristjáns Kristjánssonar og var einn af tökustöðum inn í miðjum Vaðlaheiðargöngum. Lagið sungið af Urði Bergsdóttur og leikhópnum. Sjá nánar

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link