Leikarinn Björgvin Franz Gíslason, sem hefur undanfarin tvö ár slegið í gegn hjá LA í Benedikt búálfi, Skugga Sveini og fer núna snilldarlega með hlutverk Billý Bé hæstaréttalögmanns í Chigaco, kennir þessa dagana í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar. Samkvæmt Jennýju Láru, skólastjóra Leiklistarskólans, kennir Björgvin grunndeildarhópum leiklistarskólans í febrúar og nýtur strax mikilla vinsælda. Björgvin sjálfur er mjög ánægður að fá að kenna leiklistina á Akureyri: „Ég elska að leika og hef því ástríðu fyrir því að segja skemmtilegar sögur á sviði. Það er því einstaklega ánægjulegt að fá að miðla reynslu minni og tækni til ungra áhugasamra leiklistarnema hér fyrir norðan.“ Heppnir leiklistarnemendurnir okkar!
Björgvin Franz kennir í Leiklistarskóla Leikfélags Akureyrar
Tengdar bloggfærslur
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!
Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord
Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi
Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu


