Til baka
16 Aug 2010

Bylting í tónlistarlífinu á Akureyri

Bösendorfer flygillinn er nýr og er framlag KEA til Menningarhússins Hofs en flygillinn er með opinn og ljóðrænan tón og hentar vel til einleiks og til flutnings á kammertónlist. Steinway flygillinn eða Ingimarsflygillinn svokallaði er svo hinn flygillinn en safnað var fyrir honum með minningartónleikum um hinn dáða tónlistarmann, Ingimar Eydal sem lést árið 1993. Undanfarin ár hefur flygillinn verið staðsettur í  tónlistarhúsi Eyjafjarðarsveitar, Laugarborg,  þar sem hann hefur gegnt hlutverki sínu með sóma en nú er komið að því að gestir Hofs munu njóta hans. Flyglarnir eru með ólíka karaktera og  valdir með tilliti til salanna í Hofi og notkunarmöguleika í framtíðinni.

Ingibjörg Ösp Stefánsdóttir framkvæmdastjóri Menningarhússins Hofs segir það afar ánægjulegt að geta boðið tvö glæsileg en ólík hljóðfæri til afnota fyrir gesti hússins og að framlag KEA og Tónlistarfélagsins á Akureyri í þessum efnum sé ómetanlegt.

Sjá umfjöllun í sjónvarpsfréttum RÚV 16. ágúst 2010 hér.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link