Til baka
14 Apr 2011

Caput hópurinn: Ísland/Skotland

Frumflutt verður 11 þátta verk, Too loud a solitude, fyrir selló og píanó sem Akureyringurinn Hafliði Hallgrímsson samdi sérstaklega fyrir þá Sigurð og Daníel. Hafliði, sem býr og starfar í Edinborg í Skotlandi, hefur unnið að þessu tónverki undanfarin ár.

Hálfskotinn Guðni flytur skosku verkin Winter for clarinett og Nine days Piobaireachd. Guðni Franzson hefur fengist við skoskan ballöðusöng í gegnum tíðina og munu þeir Caput menn flytja skosku ballöðuna Eileen Aroon.

Tónskáldið Haukur Tómasson hefur verið einskonar hirðtónskáld Caput hópsins frá upphafi. Að þessu sinni verða flutt tvö verka hans:  Við erum engin vorhænsni fyrir klarinett og píanó og Skak fyrir klarinett, selló og píanó en Haukur endurvann það verk sérstaklega  fyrir þessa tónleika.

500 kr. afsláttur er veittur af miðum keyptum af vefnum. Vinsamlegast athugið að afslátturinn birtist í þriðja skrefi í kaupferlinu.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link