Björgvin Franz Gíslason leikari var valinn söngvari ársins á Grímunni, íslensku sviðslistaverðlaununum, sem haldin var við hátíðlega athöfn í Borgarleikhúsinu í gærkvöldi. Verðlaunin hlaut Björgvin fyrir söng í hlutverki sínu sem Billy Flynn í söngleiknum Chicago, sem frumsýndur var í Samkomuhúsinu í byrjun árs og gekk fyrir fullu húsi fram á vor. Danshöfundurinn Lee Proud hlaut einnig verðlaun fyrir dans- og sviðshreyfingar ársins fyrir Chicago.
Söngleikurinn Chicago hlaut alls 7 tilnefningar til Grímunnar:
Sýning ársins: Chicago
Söngvari ársins: Margrét Eir
Söngvari ársins: Björgvin Frans Gíslason
Dans- og sviðshreyfingar ársins: Lee Proud
Dansari ársins: Katrín Vignisdóttir
Leikari ársins í aðalhlutverki; Björgvin Franz Gíslason
Leikari ársins í aukahlutverki: Arnþór Þórsteinsson
Menningarfélag Akureyrar óskar verðlaunahöfum til hamingju, sem og öllum þeim sem stóðu að sýningunni og þakkar þeim gjöfult samstarf. Sérstakar þakkir fá svo áhorfendur fyrir frábærar viðtökur.


