Til baka
17 Aug 2010

Dagskrá opnunarhátíðar Hofs

FÖSTUDAGUR 27. ÁGÚST 2010

Kl. 11:00

TILRAUNALANDIР

Hin lifandi og gagnvirka sýning Tilraunalandið þar sem vísindin eru kynnt á óvenjulegan og skemmtilegan hátt með virkri þátttöku gesta. Allir aldurshópar ættu að geta fundið þar eitthvað við sitt hæfi. Sýningin fer fram fyrir utan Hof og stendur til 1. september. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

Kl. 17:00

OPNUN MYNDLISTARSÝNINGA

Tvær myndlistarsýningar opnaðar í Hamragili. Annars vegar sýning Guðnýjar Kristmannsdóttur og hins vegar sýning sem Myndlistarfélagið stendur fyrir með verkum eftir rúmlega sextíu listamenn. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

Kl. 19:30 og aukatónleikar kl. 22:30

TÓNLEIKAR LAY LOW OG GESTA

Söngkonan flytur norðlenska tónlist í bland við sína eigin ásamt gestum.

Fram koma auk Lay Low: Kammerkórinn Ísold, Eyþór Ingi Jónsson,  Kór Hrafnagilsskóla, María Gunnarsdóttir, Strengjasveit, Daníel Þorsteinsson, Lára Sóley Jóhannsdóttir, Blásarakvartett, Vilhjálmur Ingi Sigurðarson, Slagverkssveit, Rokksveitin Malignant Mist, Helgi Þórsson, Helena Eyjólfsdóttir, Ivalu Birna Falck-Petersen, Hallgrímur Jónas Ingvason, Hjörleifur Örn Jónsson og Stefán Ingólfsson.  

Rás 2 verður með beina útsendingu frá fyrri tónleikunum.

Öllum 20 ára og yngri er boðið frítt á tónleikana. Hægt er nálgast miða í Hofi. Fyrstir koma fyrstir fá. Miðaverð aðeins 1.500 kr

LAUGARDAGUR 28. ÁGÚST 2010

Kl. 16:00

VÍGSLUATHÖFN HOFS

Húsið vígt með formlegum hætti. Akureyringum gefst kostur á að fylgjast með vígsluathöfninni í beinni útsendingu á sjónvarpsstöðinni N4.

Kl. 21:00-01:00

OPIÐ HÚS Í HOFI

Húsið opnað upp á gátt og gestir boðnir velkomnir. Allir hvattir til að líta við, kynna sér aðstæður og fjölbreytta starfsemi hússins.

Karlakór Akureyrar – Geysir tekur lagið ásamt öðrum skemmtiatriðum.

Kaffi og kleinur í boði Saga Capital.

Kl. 23:30

TÖKUM YFIR HÚSIÐ

Í umsjá Kristjáns Ingimarssonar. Gestir Akureyrarvöku eru hvattir til að mæta á staðinn og taka þátt í vígslu hússins undir dyggri stjórn byltingarhetjunnar Kingimars. 

SUNNUDAGUR 29. ÁGÚST 2010

Kl. 11:00 – 14:00

FJÖLSKYLDUMORGUNN Í HOFI

Dagskrá tileinkuð yngstu kynslóðinni. Heiðdís Norðfjörð les úr Pílu Pínu. Jana María og Heimir Bjarni Ingimarsson flytja tónlistina úr ævintýrinu. Brynhildur Þórarinsdóttir les úr bók sinni, Gásagátunni. Andlitsmálning í boði fyrir börnin. Allir velkomnir, enginn aðgangseyrir.

Veitingastaðurinn 1862 verður með frábært fjölskyldutilboð í bröns.

Kl. 16:00

HÁTÍÐARTÓNLEIKAR SINFÓNÍUHLJÓMSVEITAR NORÐURLANDS

Tónlist eftir Hafliða Hallgrímsson, E. Grieg og A. Dvorák. Einleikari: Víkingur Heiðar Ólafsson. Stjórnandi: Guðmundur Óli Gunnarsson

Uppselt er á tónleikana!

Þess ber ennfremur að geta að veitingastaðurinn 1862 Nordic Bistro og hönnunarverslunin Hrím hefja starfsemi í Hofi á föstudaginn.

Auglýsing með viðburðum helgarinnar.

Miðasala og nánari upplýsingar um viðburði er hægt að nálgast hér. Miðasalan er opin alla virka daga frá kl. 13:00-19:00. Miðasölusími: 450 1000.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link