Til baka
12 Feb 2020

Dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi

Hin árlega dansbylting gegn kynbundnu ofbeldi – Milljarður rís fer fram í Hömrum í Hofi þann 14. febrúar. Milljarður rís er viðburður sem haldinn er víða um heim þar sem rúmur milljarður fólks dansar fyrir heimi þar sem allir fá að njóta sömu tækifæra án ótta við ofbeldi. Vélarnar Ari þeytir skífum í Hofi á meðan við dönsum af dúndrandi samstöðukrafti. Ein af hverjum þremur konum í heiminum er beitt kynbundnu ofbeldi – þar er Ísland engin untantekning. Annan hvern dag leitar kona á landsspítalann vegna heimilisofbeldis samkvæmt rannsókn sem gerð var í fyrra. Með því að mæta og dansa með heimsbyggðinni gefur þú ofbeldi fingurinn í eitt skipti fyrir öll. Munið myllumerkið #milljarðurrís

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link