Til baka
16 Mar 2026

Djassveisla Eikar í Svarta kassanum

Það er komið að fimmtu tónleikunum af þeim átta viðburðum sem hlutu styrk frá VERÐANDI listsjóð starfsárið 2025-2026, það er Eik Haraldsdóttir sem býður til djassveislu í Svarta kassanum í Hofi fimmtudaginn 19. mars kl 20.

Tónleikar Eikar, Kvöldroðinn – Ný íslensk djasslög, samanstanda af tíu laga prógrammi, sem hún samdi fyrir útskriftartónleika sína frá Listaháskóla Íslands. Þar verður fjallað um ástina, óvissuna og hversu óhjákvæmilegt það er að vita ekki neitt.

Hljómsveitina skipa auk Eikar: Ludvig Kári Forberg á píanó og víbrafónAlexander Grybos á gítarHlynur Sævarsson á bassaAndri Eyfjörð á trommurGuðjón Steinn Skúlason á sópran og tenór saxófónnMicheal Weaver á alto saxófónnTobias Þórarinn Matharel á trompetLára Rún Keel Kristjánsdóttir á trompet og Einar Bjarni Ramos Björnsson á básúnu

Tryggið ykkur miða á mak.is

Næstu viðburðir styrkþega VERÐANDI eru Devi, indverskur dans til heiðurs gyðjunni  þann 31. maí með þeim Évu og Ashimu, dansverkið Malinche  eftir Yuliönu Palacios þann 12. júni og tónleikar Helgu Margrétar Clarke,  Raddir kvenna og kvára,  þann 19. júní.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link