Til baka
25 Oct 2023

Efnisskrá afmælistónleikanna er hér

Hér er að finna efnisskrá afmælistónleika Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. 

Sinfóníuhljómsveit Norðurlands fagnar 30 ára starfsafmæli sínu með glæsilegum afmælistónleikum í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri þann 29. október 2023.

Óðurinn til gleðinnar9. sinfónía Beethovens

Hljómsveitarstjóri: Bjarni Frímann BjarnasonEinsöngvarar eru Herdís Anna Jónasdóttir, Hildigunnur Einarsdóttir, Gunnar Björn Jónsson og Oddur Arnþór Jónsson.

Kór Akureyrarkirkju og Mótettukórinn taka þátt í tónleikunum. 

Á undan tónleikunum verður Marta Nordal leikhússtjóri Leikfélags Akureyrar með kynningu á tónskáldinu og afmælisbarninu. Kynningin fer fram í veitingarýminu í Hofi klukkustund fyrir tónleikana. Öll velkomin. 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link