Til baka
9 Oct 2026

„Ég þarf ekki að skálda allt saman, sumt skrifar sig sjálft“

Sjá viðtal

Raunveruleg íbúðaleit eftir skilnað varð kveikjan að Fasteignamartröðinni. Gabriele, höfundur verksins sem Leikfélag Akureyrar setur á svið, segir húsnæðisvandann eiga sér kunnuglegar hliðstæður á Íslandi. Innan um útreikninga, lán og fasteignaviðskipti leynist þó stærri spurning: Hvað skiptir raunverulega máli í lífinu?

Þegar Gabriele skildi við eiginmann sinn fyrir um níu árum stóð hún frammi fyrir ákvörðun sem margir þekkja: Ætti hún að leigja sér íbúð eða reyna að kaupa? Sparnaðurinn var lítill, en leigan dýr. Var skynsamlegra að greiða leigusala mánaðarlega eða borga bankanum og eignast smám saman eigið húsnæði?

Úr þessum vangaveltum og því sem á eftir fylgdi varð Fasteignamartröðin til.

„Ég myndi segja að helmingurinn sé sannur og helmingurinn skáldskapur,“ segir Gabriele. Mörg ævintýranna úr íbúðaleitinni hafi ratað beint á sviðið. Persónan sé þó ekki nákvæm eftirmynd hennar sjálfrar.

„Sumt sem persónan gerir gerði ég ekki sjálf. Þið skiljið það þegar þið sjáið sýninguna.“

Gabriele hefur sérstakt dálæti á tragíkómedíum og því að færa áhorfendur á milli hláturs og grátur. Þannig sé lífið sjálft, Jafnvel við alvarlegustu aðstæður geti eitthvað fáránlega fyndið skotið upp kollinum.

„Stundum hugsa ég: Ég þarf ekki að skálda allt saman. Það er nóg að skrifa niður það sem gerist í kringum mig.“

Þessi tilfinning sótti að henni þegar hún fylgdist með rennsli á sýningunni á Akureyri. Atriðið með Stefaníu, konu sem reynir að selja íbúðina sína, byggist að hennar sögn að mestu á raunverulegum atburðum.

„Ég hugsaði: Vá, ég trúi ekki að þetta hafi gerst í raunveruleikanum. En svona var þetta.“

Verkið hefur farið frá Litháen um Þýskaland og nú til Akureyrar. Gabriele segir það í fyrstu hafa komið sér á óvart hversu brýnt viðfangsefnið væri hér á landi. Eftir samtöl við fólk hafi hún hins vegar áttað sig á því hversu kunnugleg staðan væri.

„Það er ekki einfalt að fara í banka, fá lán og eignast sína eigin íbúð.“

Henni finnst íslenska uppfærslan ná vel utan um ólíkar hliðar verksins. Hún sé fyndin, létt og litrík en um leið alvarleg. Undir yfirborðinu vakni spurningar um virði hlutanna — og jafnvel lífsins sjálfs, þegar það sé reiknað til fjár í lánum og líftryggingum.

„En hvar eru gildin? Hvar er það sem skiptir mestu í lífinu, samböndin og fjölskyldan?“

Gabriele segist ekki vilja predika yfir áhorfendum um hvernig þeir eigi að lifa. Hún sé sjálf hluti af sama kerfisdrifnu samfélagi. Henni þyki hins vegar vænt um þann þráð verksins sem snúi að hjálpsemi og stuðningi, að þó aðalpersónan standi í ströngu, sé hún ekki ein.

Sama hlýja hafi mætt henni á Akureyri í þessari fyrstu heimsókn hennar til bæjarins. Vinir í Litháen hafi sent henni skilaboð og óskað henni góðs gengis með frumsýninguna.

„Ég svaraði: Mér finnst ég nú þegar heppin. Ég hef hitt svo margt yndislegt, hlýlegt og elskulegt fólk.“

Og hún vonast til að koma aftur.

„Þetta er í fyrsta sinn sem ég kem hingað og vonandi ekki það síðasta.“

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á