Til baka
15 Aug 2017

Ella Fitzgerald í 100 ár

Síðasti Listasumarsviðburðurinn í ár er tileinkaður Ellu Fitzgerald sem á sérstakan stað í hjörtum margra  enda er hún ein ástsælasta söngkona sem uppi hefur verið. Þessi drottning djasstónlistarinnar hefði orðið 100 ára þann 25. apríl síðastliðinn og af því tilefni ætla tónlistarkonan Fanney Kristjáns Snjólaugardóttir ásamt Helgu Kvam píanóleikara, Stefáni Ingólfssyni bassaleikara og Rodrigo Lopes slagverksleikara að heiðra minningu þessarar einstöku konu með tali og tónum í Hömrum fimmtudagskvöldið 17. ágúst kl. 20.00.

Viðburðurinn er unninn í samstarfi við Listasumar og Menningarfélag Akureyrar.

Tryggðu þér miða á mak.is einnig er hægt að nálgast miða í miðasölu tveimur tímum fyrir viðburð.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link