Til baka
5 Mar 2011

Elly Vilhjálms í 75 ár

Á afmælisdeginum í desember hélt Guðrún tvenna tónleika í Salnum í Kópavogi af þessu tilefni og aðra í janúar og nú er komið að því að bjóða Norðlendingum til sömu veislu. Guðrún gaf út plötu árið 2003 með upptöku af tónleikunum „Óður til Ellyjar“ og hlaut sú útgáfa Íslensku tónlistarverðlaunin sem besta platan í flokknum „Ýmis tónlist“ það árið.

Eftir fjölda uppselda „Óður til Ellyjar“ tónleika í Salnum veturinn 2003 ferðaðist Guðrún ásamt hljómsveitinni um landsbyggðina og fluttu þau lögin hennar Ellyjar við fádæma góðar viðtökur. 

Það gefst því einstakt tækifæri í Hofi þann 5.mars að heyra lögin hennar Ellyjar flutt af Guðrúnu Gunnars og hljómsveit, en hana skipa ;

Agnar Már Magnússon – píanó Sigurður Flosason – saxófónar og slagverk Birgir Bragason – bassi Hannes Friðbjarnarson – trommur

Sérstakir gestir á tónleikunum verða söngvarinn Ragnar Bjarnason og söngkonan Berglind Björk.

Tónleikarnir hefjast kl 20 Miðaverð: 3900 kr.

Um síðustu jól kom einnig út veglegt safn með lögum í flutningi Ellyjar og hafði Guðrún yfirumsjón með lagavali á því safni.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link