Til baka
27 Nov 2023

Ertu að leita að jólagjöf handa þeim sem allt eiga?

Ef þú ert að leita að jólagjöf handa þeim sem allt eiga þarftu ekki að leita lengur.  Gjafabréf í leikhús eða á tónleika eru frábær gjöf!

Allir krakkar elska skrímslin úr bókunum um Litla skrímslið og stóra skrímslið. Sýningin verður frumsýnd í Hofi í janúar. Í miðasölu Hofs geturðu líka fengið vinsælu bækurnar hennar Áslaugar Jónsdóttur á aðeins 1500 kr stykkið. Sýningin er ætluð fyrir leikskólabörn og börn upp að tíu ára aldri og öll þau sem muna eftir bókunum.

Í febrúar verður tónverkið  Pláneturnar eftir Gustav Holst flutt í heild sinni með sögumanni og myndasýningu í Hofi. Enginn annar er stjörnufræðingurinn Sævar Helgi Bragason ætlar að leiða áhorfendur í gegnum sögu plánetanna á meðan tilkomummiklu myndefni úr himingeimnum verður varpað upp. 

Gjafabréf á sprenghlægilegu sýninguna  And Björk, of course ætti að gleðja alla gleðipinna. Leikritið verður frumsýnt í Samkomuhúsinu í febrúar. Verkið er eftir Þorvald Þorsteinsson en með hlutverkin fara Jón Gnarr, Sveppi, Eygló Hilmarsdóttir, Arna Magnea Danks, Davíð Þór Katrínarson, María Heba Þorkelsdóttir og María Pálsdóttir. 

Skoðaðu fleiri spennandi viðburði á mak.is 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link