Til baka
24 Feb 2020

Erwin opnar sýningu

Myndlistarmaðurinn  Erwin van der Werve opnar myndlistarsýningu sína í Menningarhúsinu Hofi laugardaginn 29. febrúar. Erwin er hrifinn af spennunni sem hlutir og efni mynda í afmörkuðu rými; Hvernig þau ákveða rýmið og skapa samsetningu eða afstöðu, eins og dansarar á sviði gera. „Málverk fyrir mér er frábær, eða kannski besti miðillinn, til að rannsaka þessa spennu milli hluta, þar sem málverk getur litið á sviðsmynd út frá ákveðnu sjónarhorni og óneitanlega snýst málverkið mikið um afmörkun/afstöðu/samsetningu og að skapa rými,“ segir Erwin sem kom fyrst til Íslands í skiptinámi við LHÍ í Reykjavík frá Willem de Kooning listaháskólanum í Rotterdam. Erwin hefur búið og starfað í Hollandi, Noregi og á Íslandi, og hefur sýnt í Evrópu og Kína. Heimasíða hans er www.erwinvanderwerve.nl

Opnunin er klukkan 16 og eru allir velkomnir.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link