Til baka
6 Oct 2023

Eygló Hilmars í And Björk, of couce!

Leikkonan Eygló Hilmarsdóttir leikur í verkinu And Björk, of course sem Leikfélag Akureyrar frumsýnir í febrúar 2024! Eygló er líklega þekktust sem handritshöfundur og leikkona með sketsahópnum KANARÍ en hún hefur líka tekið þátt í fjölbreyttum verkefnum í leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi.

Eygló er mikill aðdáandi leikritsins And Björk, of course. „Leikritið hefur dvalið langdvölum á náttborðinu mínu í gegnum tíðina og ég hef flutt mónóloga úr verkinu í hinum ýmsu leikprufum, alltaf með góðum árángri, til dæmis þegar ég komst inn á leikarabraut LHÍ á sínum tíma. Þetta er því algjört draumaverkefni fyrir mig, alls ekki bara vegna þess að verkið er svo gott heldur líka vegna þeirra stórkostlegu leikara og listamanna sem munu koma að uppsetningunni. Ég bara get bókstaflega ekki beðið eftir að byrja að æfa þetta!“

Um þessar mundir leikur hún í sýningunni Sund í Tjarnarbíói. „ Ég var líka að frumsýna gamansýninguna Kvöldstund með Kanarí síðustu helgi, sem er einnig sýnd í Tjarnarbíói. Svo leik ég líka í gamanþáttunum Kennarastofunni sem verða frumsýndir á sjónvarpi símans í vetur.“

And Björk, of course er eftir Akureyringinn Þorvald Þorsteinsson. Aðrir leikarar í verkinu eru Jón Gnarr, Sverrir Þór Sverrisson, Arna Magnea Danks, Davíð Þór Katrínarson, María Pálsdóttir og María Heba Þorkelsdóttir. Leikstjóri er Hríseyingurinn Gréta Kristín Ómarsdóttir.

Forsölutilboð gildir til 15. október á mak.is!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link