Til baka
29 Nov 2022

Fantasían Ólafur Liljuljós frumflutt á Nýárstónleikum SN

Tónskáldið Michael Jón Clarke hefur samið sinfóníuna Ólafur Liljurós sem frumflutt verður á Nýárstónleikum Sinfóníuhljómsveit Norðurlands í janúar.

„Fantasían Ólafur Liljurós er sérstaklega samin fyrir SN og þar er tefld fram stórskotaliði sveitarinnar ásamt fimm einsöngvurum. Þulan velkunna af Ólafi og hans viðureign við myrkraöfl huldukonu er vel þekkt og á rætur sínar í evrópskri þjóðmenningu. Litríkt ævintýri þar sem Ólafur Liljurós berst fyrir heiðri sínum við álfakóng. Hann fer í tónlistarferðalag ekki bara til hulduheima, en einnig til villta vestursins, einnar kvikmynda Hithcocks og Hrafns Gunnlaugssonar, tónheima Händels og Jóhanns Strauss. Verkið er í senn spaugilegt, stórfenglegt, púkalegt en líka fullt af ástríðu og rómantík,“ segir Michael Jón sem verður með kynningu í Hofi fyrir þessa hátíðlegu dagskrá.

Glæsilegir nýárstónleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands undir stjórn Daníels Þorsteinssonar ásamt stórsöngvurunum Þóru Einarsdóttur, Andra Birni Róbertssyni, Hönnu Dóru Sturludóttur, Gísla Rúnari Víðissyni og Degi Þorgrímssyni verða haldnir í Hofi þann 14. janúar. Við munum fagna nýárinu í Hofi með glæsibrag og hefur Daníel sett saman hátíðlega og stórskemmtilega dagskrá í tilefni þess. Fluttir verða valsar, polkar, forleikir og aríur eftir tónskáld á borð við Johann Strauss, Sergei Prokofiev o.fl og munu gestir fá að njóta þessarar hátíðardagskrár í Hamraborg. 

Miðasala er í fullum gangi á mak.is.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link