Til baka
4 May 2026

Fiðringur á Norðurlandi fagnar 5 ára afmæli

Í ár taka tíu grunnskólar af Norðurlandi þátt í sviðslistarviðburðinum Fiðringi á Norðurlandi sem haldinn verður í Hofi þann 6. maí. Varmahlíðarskóli tekur nú þátt í fyrsta sinn, og stefnan er að virkja alla grunnskóla á svæðinu frá Borðeyri til Bakkafjarðar.

Nemendur á unglingastigi hafa unnið að atriðum sínum alla vorönnina með leiðbeinendum, en mikil áhersla er lögð á sjálfstæði og lýðræðislega vinnu. Unglingarnir skapa allt sjálfir, frá hugmynd að atriði til sviðshreyfinga, búninga, leikmyndar, ljósa og hljóðs. Verkefnið eflir því sköpun og tjáningu nemenda sem fá að koma sínum hugðarefnum á framfæri á listrænan hátt.

Í dómarahléi verður Fiðringslagið flutt sem í ár er lagið „Hvar ertu nú?“ með Maron Birni, sem mætir og skemmtir gestum.

Kynnar verða leikarnir Hólmfríður Hafliðadóttir og Níels Thibaud Girerd sem léku hjá Leikfélagi Akureyrar í vetur

Í dómnefnd sitja Bergur Þór Ingólfsson leikhússtjóri, Ingunn Elísabet Hreinsdóttir dansari og kennari og Rebekka Rut fulltrúi Ungmennaráðs Akureyrar

Sérstök verðlaun verða veitt fyrir skapandi notkun íslenskunnar, metin af Eyrúnu Huld Haraldsdóttur íslenskukennara

Nemendur fá aðgang að miðakaupum í gegnum sína skóla, en almenn miðasala fyrir aðstandendur hófst 1. maí á mak.is

Ekki missa af! Komdu og sjáðu sviðslistafólk framtíðarinnar í Hofi 6. maí.

Menningarfélag Akureyrar stendur að baki Fiðringi og er. styrkt af sókaráætlun SSNE og sóknaráætlun SSNV

 

Myndir: Sindri Swan

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link