Til baka
7 May 2024

Fiðringur í Hofi í þriðja sinn

Fiðringur á Norðurlandi verður haldinn í Hofi þriðja sinn þann 8. maí kl 20. Tíu skólar taka þátt í ár og mætast þeir á úrslitakvöldinu og sýna afrakstur vinnu sinnar á vorönn. Mikil áhersla er lögð á að hugmyndin og útfærslan sé alfarið unglinganna sjálfra og einnig sjá þau um tæknimál og búninga, leikmynd og förðun.

Lýðræði er einn af hornsteinum Fiðrings og unglingarnir taka þátt í öllum ákvarðanatökum. Þannig er valið á listamanni sem kemur fram í dómarahléi ákveðið út frá hvaða lag ungmennin velja sem Fiðringslag. Í ár kusu krakkarnir lagið Skína með Prettyboitjokko sem mætir á svæðið. Einnig senda þau inn tillögur að baksviðspössum og kjósa svo eina tillögu sem er prentuð út og allir fá um hálsinn.

Kynnar kvöldsins verða Akureyringurinn Egill Andrason og Helga Salvör Jónsdóttir en þau útskrifast bæði frá LHÍ í vor.

RÚV mun taka upp atriðin og birta þau á sínum miðlum.

Það er gaman að geta þess að SSNE hefur tryggt verkefninu fjármagn til ársins 2026 en verkefnið er á vegum Menningarfélags Akureyrar að frumkvæði Maríu Pálsdóttur leikkonu sem er verkefnastjóri ásamt Kristínu Sóleyju Björnsdóttur og Heru Jónsdóttur. 

Skrekkur í Reykjavík og Sjálftinn á Suðurlandi eru fyrirmyndir Fiðrings sem er dýrmætur vettvangur fyrir unglingana á Norðurlandi eystra til að láta rödd sína heyrast.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link