Til baka
19 Apr 2011

Fjölbreytt dagskrá í Hofi um páskana

Hápunktur vetrarstarfs Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands verður á stórtónleikum þeirra á skírdag kl. 16. 82 hljóðfæraleikarar stíga á svið í Hofi og leikin verður rússnesk tónlist eftir tónskáldin Tchaikovsky, Moussorgsky og Schostakowitsch. Mikið verður um dýrðir þegar Forleikurinn 1812 eftir P. I. Tchaikovsky verður fluttur. Verkið sem er skrifað fyrir sinfóníuhljómsveit, kirkjuklukkur og 16 fallbyssur samdi Tchaikovsky til að minnast árásar Napóleons á Moskvu árið 1812 og sigur Rússa á her Napóleons.

Forleikinn ætlar Sinfóníuhljómsveit Norðurlands að flytja með tilheyrandi fallbyssuskotum á sviðinu í Hofi. Sérlegur sprengjusérfræðingur kemur til liðs við hljómsveitina og slagverksleikari með stáltaugar sinna verkinu þegar á hólminn er komið. Þetta er í fyrsta sinn sem verkið er flutt með þessum hætti á Íslandi. Aðeins eru örfá sæti laus á tónleikana. Hægt er að kaupa miða hér.

Söngleikurinn, Hárið, sem var frumsýndur í Hofi verður sýndur yfir páskana. Vegna mikillar eftirspurnar hefur verið bætt við aukasýningum.  Sýningin er á stóra sviðinu í Hamraborg þannig gestir sitja í mikilli nánd við leikarana á sviðinu. Hægt er að kaupa miða í sæti eða lautina en sama miðaverð er á báða staðina.  Sætin eru umhverfis sviðið en ef þú pantar miða í lautina eru í þægindin í fyrirrúmi á teppum og púðum í nánd við leikarana og upplifir þannig hina sannkölluðu „Woodstock“ stemningu. Miðasala hér.

Óskar Pétursson tekur á móti góðum gestum á tónleikum í Hofi á laugardagskvöldinu. Óbeislaður húmor og léttleiki verður í fyrirrúmi þó eitt og eitt vasaklútalag detti inn á milli. Gestir kvöldsins eru: Harpa Björk Birgisdóttir, Hjalti og Lára Sóley, Diddú og Ragnar Bjarnason. Hljómsveitarstjóri er Gunnar Þórðarson. Miðasala hér.

Á páskadag verður svo hinn vinsæli útvarpsþáttur Gestir út um allt sendur út frá Hofi. Gestir þáttarins verða Gunni Þórðar, Raggi Bjarna, Hannes og Helgi, Vindbelgurinn, ungir og efnilegir tónlistarmenn að norðan og leynigestur sem mun gleðja bæði augu og eyru! Við hvetjum alla til þess að mæta í Hof, milli kl. 13-15 og taka þátt í þessum skemmtilega mánaðarlega viðburði. Allir velkomnir og enginn aðgangseyrir.

Að lokum má geta þess að Hrím og 1862 Nordic bistro í Hofi verða með eftirfarandi opnun:

1862 Nordic bistroSkírdagur 11-21 Föstudagurinn langi 11-22 Laugardagur 23 apríl 11-22  Páskadagur 11-22  Annar í páskum 11-21

Hrím hönnunarhúsSkírdagur 13-16 Laugardagur 11-16 Páskadagur 13-16

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link