Til baka
3 May 2023

Fjölbreyttur maí í Hofi!

Maí mánuður verður fjölbreyttur í Menningarhúsinu Hofi!

Myndlistasýningin 10+ stendur yfir í Hamragili en sýningin, sem er samsýning 14 akureyrskra listakvenna sem hafa orðið á vegi Katrínar eiganda Kistu. Sýningin er haldin í tilefni rúmlega tíu ára afmælis Kistu í Hofi. Sýningin stendur til 22. maí.

Tónlistarskólinn á Akureyri heldur fjölda vortónleika í mánuðnum. Nánari upplýsingar um viðburðina eru á mak.is og tonak.is.

Þann 6. maí er komið að danssýningunni  Afsakið hlé en þá munu nemendur DSA sýna afrakstur annarinnar. Dansskólinn Steps heldur svo sína sýningu laugardaginn 13. maí.

Tónleikarnir  Steinunn Arnbjörg og stofutónlistin er á dagskrá í Hömrum 14. maí. Steinunn hefur fengið frjálsar hendur til að sníða efnisskrá sem varpar ljósi á viðfangsefni hennar í listum en um leið leyfir hún tónleikagestum að hlýða á bitastæð kammerverk í meðförum strengjaleikar Sinfóníuhljómsveitar Norðurlands. Miðasala er í fullum gangi á mak.is.

Þann 20. maí er komið að sönghópnum  Rok sem heldur sýna fyrstu tónleika og ráðast þau ekki á garðinn þar sem hann er lægstur heldur ætla að skella sér beint í rokkið. Hver er ekki til í nostalgíuna sem fylgir því að hlusta á lög með Scorpions, Heart, Queen, Led Zeppelin ásamt ýmsum öðrum í magnaðri rokksögu síðustu áratuga? Tónleikarnir eru styrktir af VERÐANDI listsjóði. Miðasala á mak.is.

Listakonan Aðalheiður S. Eysteinsdóttir verður með sumarsýninguna í Hofi þetta sumarið. Opnun sýningarinnar er 27. maí kl. 14. Öll velkomin.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link