Til baka
17 May 2010

Fjórir ráðnir í Menningarhúsið Hof – 150 umsóknir bárust

Magnús Viðar Arnarsson hefur verið ráðinn í starf umsjónamanns fasteignar. Magnús hefur starfað hjá Slökkviliði Akureyrar frá árinu 1998 en hann er húsasmíðameistari og löggiltur slökkviliðs- og sjúkraflutningamaður að mennt. Í starf tæknistjóra var Einar Karl Valmundsson ráðinn.  Einar hefur víðtæka reynslu af vinnu í tengslum við ljós og hljóð en hann hefur einnig unnið mikið fyrir sjónvarp.  Síðustu ár hefur Einar unnið hjá Sense þar sem hann hefur þjónustað ráðstefnur og fjölda annarra viðburða. Heiðrún Grétarsdóttir var ráðin í starf markaðsfulltrúa. Heiðrún er með BSc gráðu í viðskiptafræði frá Háskólanum í Reykjavík og er nú í meistaranámi í verkefnastjórnun (MPM) við verkfræðideild Háskóla Íslands. Heiðrún hefur víðtæka reynslu í markaðsmálum og verkefnastjórnun, m.a. í starfi markaðsráðgjafa á auglýsingastofu og hjá Nikita Clothing. Ingileif Axfjörð var ráðin til starfa í móttöku og miðasölu. Ingileif hefur fjölbreytta reynslu af afgreiðslu og þjónustustörfum nú síðast hjá Átaki heilsurækt.

 

 

Menningarhúsið Hof verður opnað 27. ágúst 2010 og munu starfsmenn hefja störf nú á sumarmánuðum.

 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link