Til baka
2 May 2024

Forðabúr hjartans opnar í Hofi á laugardaginn

Forðabúr hjartans – Sýning 43 félaga í Myndlistarfélaginu opnar laugardaginn 4. maí í Menningarhúsinu Hofi. 

Á Akureyri og nágrenni starfar fjölbreyttur hópur ólíkra myndlistarmanna sem endurspeglar gróskuna á sviði myndlistar. Myndlistin hefur sitt einstaka tjáningarform sem endurómar á óteljandi mismunandi vegu og tjáir sjónarhorn, viðhorf og tilfinningar, en fyrst og fremst er myndlist sjónræn upplifun og hún er okkur mikilvæg því hún nærir, vökvar, frjóvgar og býr til forðabúr, forðabúr hjartans.

Á sýningunni Forðabúr hjartans er myndlist eftir fjörutíu og þrjá ólíka myndlistarmenn sem veita okkur innsýn í myndheim sinn.

„Þetta er sýning 43 listamanna sem endurspeglar þessa gríðarlegu grósku sem er hér á sviði myndlistar,“ segir Brynhildur Kristinsdóttir, formaður Myndlistafélagsins.

Myndlistarfélagið var stofnað í janúar árið 2008 og er eitt aðildarfélaga Sambands íslenskra myndlistarmanna.

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

17 Nov 2026
Jólailmur í Hofi á sunnudaginn!

Sunnudaginn 22. nóvember mun árlega hönnunar- og handverkshátíðin Jólailmur fara fram í Menningarhúsinu Hofi frá kl. 12-19. Hátíðin hefur fest sig í sessi undanfarin ár og notið mikilla vinsælda meðal bæjarbúa og gesta. Yfir 30 þátttakendur taka þátt í hátíðinni í ár og verður boðið upp á fjölbreytt úrval af fallegri hönnun, handverki og ljúffengum

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

Secret Link