Til baka
11 Oct 2024

Frá Gervitungli til Geirmundar

Hof er heldur betur að sanna sig sem hús fjölbreytileikans þessa dagana.

Um síðustu helgi voru risa rokk-sinfóníu tónleikar með Dimmu og SinfoniaNord, á sama tíma voru funda-og veislusalir þéttsetnir og mikil gleði í húsinu. Nánast áður en síðasti rokktónninn þagnaði hófst 5 daga alþjóðlegur vinnufundur um hönnun og smíði á nýrri tegund gervitungls.

Í dag funda stjórnendur í öldrunarþjónustu í húsinu, á laugardag fer fram hluti af A! Gjörningahátíð þegar Magnús Helgason verður með gjörning sem aldrei hefur verið framkvæmdur áður. Á sunnudaginn eru tónleikar á vegum Tónlistarskólans á Akureyri í Hömrum samhliða stórtónleikunum Geirmundar Valtýssonar – 80 ár í syngjandi sveiflu þar sem velvaldir söngvarar og hljóðfærleikarar flytja öll hans vinsælustu lög.

Þessu næst tekur svo við þriggja daga alþjóðleg ráðstefna í næstu viku ásamt fleiri fundum. Tónlistarviðburðurinn Klang og blang fer fram í Svarta kassanum, fimmtudagskvöldið 17. október, sem styrktur er af VERÐANDI listsjóð, og myndlistakonan Rebekka Kühnis mun opna myndlistasýningu sína Hverfullt föstudagin 18. október.

 

Það er því ekki ofsögum sagt að nóg sé um að vera í húsinu og viðburðirnir skemmtilega fjölbreyttir nú sem endra nær.

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

15 Oct 2026
Menningarfélag Akureyrar hlýtur viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026

Menningarfélag Akureyrar hefur hlotið viðurkenningu Jafnvægisvogarinnar 2026 fyrir að hafa náð markmiði um kynjajafnvægi í efsta stjórnendalagi. Þetta er ekki einungis áfangi heldur staðfesting á þeirri vegferð sem stjórnendur Menningarfélagsins hafa verið á, sem er að skapa vinnustað þar sem allir hafa jöfn tækifæri til að vaxa, leiða og hafa áhrif. Jafnvægisvogin er hreyfiaflsverkefni á

Secret Link