Til baka
10 Feb 2026

Frábær febrúar hjá okkur í Menningarfélagi Akureyrar

Það er nóg um að vera í febrúar hjá okkur í Menningarfélaginu! 

HAMPARAT || Föstudaginn 20. febrúar kl 20:00 í Hofi HAMPARAT hefur nú ákveðið að gleðja landsmenn með því að glæða aftur eldinn, og mun tónleikaveislan þeirra að þessu sinni hefjast á Akureyri þar sem heimamönnum mun gefast tækifæri til að sjá Hof fyllast eldglæringum úr neðra. https://www.mak.is/is/vidburdir/hamparat

BIRTÍNGUR || Frumsýning 26. febrúar í Samkomuhúsinu Bráðskemmtileg, filterslaus rokkóperetta um hörmungar og dauða sem enginn má missa af. 12 ný lög eftir Þorvald Bjarna og hljómsveit frá Sinfóníuhljómsveit Norðurlands á sviðinu. Aðeins sýnd í febrúar og mars! https://www.mak.is/is/vidburdir/birtingur

ÉG SKAL SYNGJA FYRIR ÞIG || 28. febrúar kl 21:00 í Hofi Einar Ágúst syngur ljóð Jónasar Friðriks við undirleik Gosanna frá Vestmannaeyjum. https://www.mak.is/is/vidburdir/eg-skal-syngja-fyrir-thig

UPPTAKTURINN 2026 Svo má ekki gleyma að umsóknarfrestur í Upptaktinn okkar frábæra rennur út 19. febrúar á miðnætti og erum við svo spennt að sjá hugmyndirnar sem munu koma frá hæfileikaríku krökkunum á Norðurlandi eystra. Nánar hér: https://www.mak.is/…/menningarh…/upptakturinn-a-akureyri

MAJÓ Veitingarstaðurinn Majó er svo á fullu í framkvæmdum og hlakkar til að taka á móti fólki á vormánuðum! Hægt er að fylgjast með þeim hér https://www.facebook.com/majo.iceland

Hlökkum til að sjá ykkur!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link