Til baka
7 Feb 2025

Frábærir páskar hjá Menningarfélagi Akureyrar

Litla Hryllingsbúðin sem gerði allt vitlaust á Akureyri í haust snýr aftur einungis yfir páskana með örfáar sýningar og er þá frábært tækifæri fyrir pör, fjölskyldur eða vinahópa að renna sér úr brekkunni beint í leikhús að sjá þessa mögnuðu, skemmtilegu og hryllilegu sýningu. Miðasala er hér!

Það verður stórhátíð í Hofi á Skírdag, 17. apríl en þá verður hin stórfenglega Jóhannesarpassía Bachs flutt af Sinfóníuhljómsveit Norðurlands, Kór Akureyrarkirkju, Kammerkór Norðurlands og einvala liði einsöngvara. Verkið er stundum kölluð drottning allra tónverka. Frásögnin af síðustu stundum Krists eins og hún er sögð í guðspjalli Jóhannesar. Handtaka Krists, yfirheyrsla, krossfesting og loks dauði er umfjöllunarefnið í þessu einu ástsælasta stórvirki Bachs.Miðasala er hér!

Þann 19. Apríl er svo tvenna af tónleikunum “Vilhjálmur Vilhjálmsson 80 ára”. Friðrik Ómar Syngur lög Vilhjálms ásamt stórhljómsveit undir stjórn Karls. O. Olgeirssonar. Miðasala er hér!

Gleðilega páska á Akureyri!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link