Þegar ákveðið var að Friðrik Dór og SinfoniaNord myndu halda tónleika saman kviknaði í framhaldinu hugmynd að því að gera lag saman. Afraksturinn varð „Hvað er það versta sem gæti gerst?“, sem hefur jafnt og þétt klifrað upp vinsældarlista útvarpsstöðvanna og er nú komið alla leið á toppinn á vinsældarlista Rásar 2.
Lagið var tekið upp í Reykjavík og í Hofi á Akureyri og sá Þorvaldur Bjarni Þorvaldsson um strengjaútsetningar, lagið var upphafslag á tvennum tónleikum í Hofi um helgina þar Friðrik Dór og SinfoniaNord fluttu vinsælustu lög Friðriks við frábærar móttökur.
Næsti viðkomustaður er Eldborg í Hörpu þann 31. október. Þar er þegar nánast uppselt og hver að verða síðastur að næla sér í miða á þetta blómstrandi samstarf.


