Það var sannkölluð tónlistarveisla í Hofi á laugardaginn þegar Friðrik Dór og SinfoniaNord komu fram á tvennum tónleikum í Hamraborg og buðu gestum upp á þekktustu lög Friðriks í kraftmiklum sinfónískum búningi.
Frá fyrsta tóni var ljóst að þetta yrðu engir hefðbundnir sitjandi tónleikar. Friðrik Dór hélt uppi stemningunni eins og knattspyrnuþjálfari hvetur leikmenn áfram og sá til þess að salurinn væri með frá fyrstu mínútu. Hann hélt orkunni gangandi út alla dagskrána og fyrr en varði stóðu allir áhorfendur upp úr sætum sínum, sungu með og dönsuðu eins og hálfvitar.
SinfoniaNord var í stóru hlutverki og gaf lögum Friðriks nýjan lit og aukinn kraft. Hljómsveitarstjórinn Ragnheiður Ingunn Jóhannsdóttir smellpassaði við tónlistina og stýrði hljómsveitinni af fagmennsku, stuði og léttleika. Hún var alveg meðetta.
Samspil Friðriks og SinfoniaNord, hlið við hlið, virkaði einstaklega vel. Þekkt popplög fengu stærri hljóm, nýjar víddir og á köflum allt annan blæ í mögnuðu útsetningum Þórðar Magnússonar, Þorvaldar Bjarna Þorvaldssonar og Ara Braga Kárasonar.
Mikil eftirspurn hafði verið eftir tónleikunum kl. 20 og var aukatónleikum bætt við klukkan 16:30.
Tónleikatvennan í Hofi sýndi vel hvað getur gerst þegar sígild popptónlist og kraftmikil SinfoniaNord mætir á sama tíma á sama stað.
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson


