Til baka
12 Jan 2021

Friðrik Ómar og Eik sameina krafta sína

Á fimmtudagskvöldið fara fram þriðju tónleikarnir í tónleikaröðinni Í HOFI & Heim þegar stórsöngvarinn Friðrik Ómar og söngkonan unga Eik Haraldsdóttir stíga á svið Hamraborgar í Menningarhúsinu Hofi. 

Tónleikunum verður streymt beint á mak.is svo áhorfendur geta notið tónleikanna í huggulegheitunum í sófanum heima. 

Á tónleikaröðinni, sem styrkt er af Menningarsjóði Akureyrarbæjar, er kynslóðunum teflt saman. Ungt listafólk frá Akureyri kemur fram með sér reyndara listafólki svo úr verður nýr og forvitnilegur vinkill um leið og kunnuglegheitin eru til staðar. Listafólkið mun flytja bæði þekkt lög og sín eigin svo allir fái að njóta sín.

Á þessum tónleikum munu Friðrik Ómar og Eik koma saman auk þess sem Hallgrímur Jónas Ómarsson spilar á gítar. Söngvarann Friðrik Ómar þekkja allir landsmenn en Eik er 18 ára Akureyringur sem hefur sungið opinberlega frá 10 ára aldri. Hún er að klára framhaldspróf í rhytmískum söng og jafnframt stúdentspróf af tónlistarbraut frá Menntaskólanum á Akureyri. Hún var jólastjarna Björgvins árið 2013 og hefur meðal annars tekið þátt í uppsetningu Leikfélags Akureyrar á Vorið vaknar og Pílu pínu. Eik er að gefa út sína fyrstu plötu í janúar með vini sínum.

Tónleikarnir hefjast klukkan 20. 

 

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link