Til baka
13 Apr 2026

Frumflutningur sjö glænýrra laga eftir 10-12 ára ungmenni 19. apríl í Hamraborg

Uppskeruhátíð Upptaktsins, tónsköpunarverðlaun barna og ungmenna á Norðurlandi eystra, verður haldin sunnudaginn 19. apríl kl. 17. Þar verða sjö ný lög eftir jafnmörg ungmenni á aldrinum 10-12 ára frumflutt af atvinnuhljóðfæraleikum á sviði Hamraborgar.

Það voru sjö ungmenni, öll frá Akureyri, sem komust áfram að þessu sinni í Upptaktinn. Þau sendu inn hugmynd að lagi sem þau hafa unnið í vinnusmiðjum með Gretu Salóme, tónlistarstjóra Upptaktsins og fiðluleikara.  Afrakstur vinnu þeirra má sjá og heyra á tónleikunum, sem eru hluti af Barnamanningarhátíðinni á Akureyri.

Ungtónskáldin sjö eru:

Freyja Rán Kristínardóttir – Snjóstormur

 10 ára úr Glerárskóla

Guðný Lilja B. Ásgeirsdóttir – Draumar

 10 ára úr Lundarskóla

Hákon Geir Snorrason – Saman

 12 ára úr Lundarskóla.

Ólöf Birna Kristjánsdóttir

 11 ára úr Síðuskóla

Ólöf Braga Ívarsdóttir – Tímavélin

 10 ára úr Giljaskóla

Sandra Ósk Ragnarsdóttir Lieske

 12 ára úr Brekkuskóla

Þorvaldur Adam Ásgeirsson – Blíða

 10 ára úr Lundarskóla

 

Hljómsveit Upptaktsins skipar tónlistarfólkið:

Emil Þorri Emilsson – slagverk

Eydís S. Úlfarsdóttir – víóla

Eyþór Ingi Jónsson – flygill

Greta Salóme – fiðla og söngur

Kristján Edelstein – gítar

Stefán Ingólfsson – bassi

Ágúst Þór Brynjarsson – söngur

Útsetning verkanna fyrir hljómsveit: Greta Salóme Stefánsdóttir

Tónlistarstjóri: Greta Salóme Stefánsdóttir

 

Upptakturinn er samstarfsverkefni Menningarhússins Hofs og Upptaktsins í Hörpu. Verkefnið er styrkt af SSNE

Frítt er inn á tónleikana og öll eru hjartanlega velkomin!

Deildu þessari færslu:

Tengdar bloggfærslur

9 Nov 2026
Stór upptökuhelgi að baki hjá SinfoniaNord

Tónlist fyrir fjórðu þáttaröð sjónvarpsþáttanna Silo og framhald teiknimyndarinnar Lói, þú flýgur aldrei einn var hljóðrituð í Hofi um helgina. SinfoniaNord sinnti þar tveimur alþjóðlegum verkefnum á þremur dögum. Föstudaginn 6. nóvember tók hljómsveitin upp tónlist eftir Atla Örvarsson fyrir fjórðu og síðustu þáttaröð Silo. Þessir vinsælu vísindaskáldsöguþættir Apple TV skarta Rebeccu Ferguson í aðalhlutverki

4 Nov 2026
Upplausn og blómgun – opnun myndlistarsýningar í Hofi

Myndlistakonan María Sigríður Jónsdóttir opnar sýningu sína Upplausn og blómgun laugardaginn 7. nóvember kl. 15 í Hofi. María Sigríður er fædd á Akureyri og stundaði myndlistarnám viðRíkisakademíuna í Flórens á árunum 1994-1998. María býr á Ítalíu og starfar þar á eigin vinnustofu í Sinalunga, Toskana, þar sem hún sækir innblástur í umhverfi sitt og tengingu

27 Oct 2026
Þrír uppseldir viðburðir í Hofi næstu helgi

Það verður tónlistarveisla í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri um komandi helgi, 31. október og 1. nóvember, þegar Hamraborg þrífyllist af fólki. Alls er gert ráð fyrir um 1.500 gestum á þrenna tónleika. Laugardagskvöldið 31. október stígur hljómsveitin Nýdönsk á svið með tónleikana Fullkomið farartæki. Mikil eftirspurn hefur verið eftir tónleikunum og er nú nánast uppselt.

Secret Link